Þór/KA fékk heimaleik gegn Fylki þegar dregið var í átta liða úrslit bikarkeppni kvenna í knattspyrnu, Borgunarbikarnum, nú í hádeginu í höfuðstöðum KSÍ. Stórleikur umferðarinnar verður viðureign Breiðabliks og Íslandsmeistara Stjörnunnar. Þá mætast einnig Valur og FH og Afturelding og KR. Áætlað er að leikirnir fari fram föstudaginn 13. júlí.