Kvennalið Þórs/KA heldur áfram að gera góða hluti á knattspyrnuvellinum. Í kvöld komst liðið í undanúrslit í Borgunarbikarnum eftir 2:1 sigur á Fylki á Þórsvellinum og voru öll mörkin skoruð í seinni hálfleik. Bandaríski leikmaðurinn Tahnai Annis kom Þór/KA yfir eftir um 70 mínútna leik en hún skallaði boltann í markið eftir skot í þverslá Fylkismarksins. Fylkiskonum tókst að jafna fáum mínútum síðar, eftir að markvörður Þórs/KA kastaði boltanum í varnarmann, þaðan sem hann barst til Lovísu Sólveigar Erlingsdóttur, sem skoraði. En það var hin unga og stórefnilega Sandra María Jessen sem átti lokaorðið en hún getur ekki hætt að skora. Félagi hennar í framlínunni, Katrín Ásbjörnsdóttir, skallaði boltann inn í teig og ekki vildi betur til þegar varnarmanður Fylkis reyndi að hreinsa í burtu, að hann sparkaði boltanum í Söndru Maríu og af henni fór boltinn í markið.
Þetta var önnur viðureign Þórs/KA og Fylkis á Þórsvellinum á fáum dögum en sl. þriðjudag unnu norðanstúlkur öruggan heimasigur í Pepsi-deildinni, 4:0. Þá skoraði Sandra María tvívegis og er hún markahæst í deildinni með 10 mörk í níu leikjum. Fyrri umferð deildarinnar er lokið og í vikunni var Sandra María valin besti leikmaður fyrri umferðar í Pepsi-deild kvenna. Þjálfari hennar, Jóhann Kristinn Gunnarsson, var valinn besti þjálfarinn. Þór/KA átti jafnframt fjóra leikmenn í úrvalsliði fyrri umferðar en auk Söndru Maríu, voru valdar í liðið þær Arna Sif Ásgrímsdóttir, Katrín Ásbjörnsdóttir og Kayle Grimsley. Þór/KA situr í efsta sæti deildarinnar en liðið á mjög erfiðan útileik gegn Stjörnunni um miðja næstu viku en Stjarnan er í öðru sæti deildarinnar.