Þórsarar verða eldlínunni á Íslandsmótinu í 1. deild karla í dag er liðið tekur á móti Hetti í Íþróttahöllinni á Akureyri kl. 14:00. Þór tapaði stórt gegn Val á heimavelli sl. fimmtudag og þurfa því á sigri að halda í dag í toppbaráttunni.
Þór er sem stendur í þriðja sæti deildarinnar með 12 stig, sex stigum frá toppsætinu. Höttur situr hins vegar í næstneðsta sæti með fjögur stig en liðið hefur aðeins unnið tvo leiki í vetur.