Guðmundur Hólmar Helgason leikmaður Akureyrar Handboltafélags hefur fengið aukna ábyrgð í liði norðanmanna í vetur. Eftir að þeir Jónatan Þór Magnússon og Árni Þór Sigtryggsson yfirgáfu félagið sl. vor kom það í hlut Guðmundar og Geirs Guðmundssonar að stíga upp og fylla þeirra skarð sem helstu skyttur liðsins, ásamt Heimi Erni Árnasyni fyrirliða og Bjarna Fritzsyni.
Báðir hafa þeir Guðmundur og Geir staðið sig vel en Geir er hins vegar frá út veturinn vegna veikinda. Guðmundur, sem er 18 ára, spilar í stöðu vinstri skyttu og átti frábæran seinni hálfleik er Akureyri lagði Val á heimavelli, 23:20, í N1-deildinni sl. fimmtudag. Hann skoraði sjö mörk í leiknum, þar af sex í seinni hálfleik og var valinn maður leiksins í liði heimamanna.
Akureyri heldur með sigrinum sex stiga forystu í deildinni með 27 stig. Ekkert er leikið í deildinni þessa vikuna og fer næsta umferð fram fimmtudaginn 17. mars. Guðmundur segir að það hafa verið nokkuð stressandi í haust að vita að hann, ásamt Geir, ættu að bera þungan í skyttustöðunum. Hann er þó ágætlega sáttur með frammistöðu sína í vetur.
„Þetta var góð áskorun og er ennþá. Ég var smá stressaður fyrst en svo hefur þetta bara gengið þokkalega vel hjá mér. Svo er líka rosalega gott að hafa þessa reynslumeiri leikmenn með sér eins og Heimi fyrirliða. Það hjálpar rosalega,” segir hann. Guðmundur er á sínum þriðja vetri með meistaraflokki Akureyrar og spilar núna lágmark 50 mínútur í vel flestum leikjum liðsins. Hann segist hafa tekið miklum framförum sem leikmaður í vetur frá því í fyrra.
„Það er allavega búið að segja það við mig. Aðallega mamma samt,” segir Guðmundur léttur í bragði. „En það er alveg rétt að ég hef bætt mig í leikskilningi og öðru sviðum. Maður er samt hálfgerður kjúklingur ennþá og það er oft verið að leiðbeina manni og skamma mann. Maður verður hins vegar bara að taka því og reyna að nýta sér það.”
Nánar er rætt við Guðmund í Vikudegi í dag.