Talsvert var að gera hjá lögreglunni á Akureyri í nótt vegna skemmtanahalds á Akureyri. Mikill fjöldi fólks var í miðbæ
Akureyrar í gærkvöldi og nótt og þó nokkur ölvun. Lögreglan þurfti aðallega að hafa afskipti af fólki sem hafði
sofnað ölvunarsvefni utandyra víðs vegar um bæinn. Einn gisti fangageymslu lögreglunnar sökum ölvunar. Þau mál sem komu til kasta
lögreglu reyndust vera minniháttar.