Tæp 60% sögðu nei við Icesve

Tæp 60 prósent Íslendinga sögðu nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni um Icesave-samingana í gær. Talningu er lokið í öllum kjördæmum. Hvarvetna var öruggur meirihluti fyrir því að hafna samningunum en mestur var munurinn í Suðurkjördæmi, þar sem tæp 73% þeirra sem greiddu atkvæði sögu nei. Í Norðausturkjördæmi sögðu 62,2% nei en 37,8% já.  

Niðurstaðan í einstökum kjördæmum varð þesssi samkvæmt því sem fram kemur á ruv.is.

Reykjavíkurkjördæmi norður:
Talningu er lokið.
Kjörsókn: 73,2% (32.613 greiddu atkvæði)
Já: 46,7%
Nei: 53,3%

Reykjavíkurkjördæmi suður:
Talningu er lokið.
Kjörsókn: 75,3% (33.492 greiddu atkvæði)
Já: 45,7%
Nei: 54,3%

Suðvesturkjördæmi:
Talningu er lokið.
Kjörsókn: 77,8% (47.120 greiddu atkvæði)
Já: 41,6%
Nei: 58,4%

Suðurkjördæmi:
Talningu er lokið.
Kjörsókn: 75,5% (24.881 greiddu atkvæði)
Já: 27,1%
Nei: 72,9%

Norðvesturkjördæmi:

Talningu lokið.
15.994 greiddu atkvæði, en rúm 21 þúsund voru á kjörskrá.
Já: 34,6%
Nei: 63,9%

Norðausturkjördæmi:
Talningu er lokið.
Kjörsókn var73,2% (20.991 greidd atkvæði)
Já: 37,8%
Nei: 62,2%

Nýjast