Sveitarstjórn tilbúin að tvöfalda hlutafé sitt í Vaðlaheiðargöngum

Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar lýsir vilja sínum til að auka hlutafé sitt í Vaðlaheiðargöngum um allt að tvöföldun frá því sem áður hefur verið lofað svo hægt sé að hefja framkvæmdir við göngin sem allra fyrst. Þetta kemur fram í bókun sem samþykkt var á fundi sveitarstjórnar í gær. Þar segir: „Í greinargerð IFS greiningar um framkvæmd Vaðlaheiðarganga kemur fram að ekki sé ágreiningur um þjóðhagslega arðsemi verkefnisins, en leitt líkum að því að auka þurfi eigið fé Vaðlaheiðarganga ehf. svo tryggja megi hagstæða fjármögnun til framtíðar.

Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar lýsir vilja sínum til að auka hlutafé sitt í Vaðlaheiðargöngum um allt að tvöföldun frá því sem áður hefur verið lofað svo hægt sé að hefja framkvæmdir við göngin sem allra fyrst. Skorar sveitarstjórn á ríkisstjórn Íslands að samþykkja ríkisábyrgð á fjármögnun ganganna svo hægt sé að hefja framkvæmdir sem allra fyrst. Þá má benda á að ríkissjóður fær 3 – 3,5 milljarða í beinar tekjur af framkvæmdinni á byggingartíma ganganna ef farið verður í hana. Þá fjármuni má nota í brýn verkefni í þágu samfélagsins. Minnir sveitarstjórn á það að mjög litlu fé er varið til vegamála á landsbyggðinni þrátt fyrir síauknar álögur á bifreiðaeigendur.”

 

Nýjast