Guðmundur Þórður Guðmundsson landsliðsþjálfari karla í handbolta hefur valið 19 manna æfingahóp fyrir heimsmeistaramótið í Svíþjóð sem hefst þann 13. janúar næstkomandi. Tveir liðsmenn Akureyrar eru í hópnum, markvörðurinn Sveinbjörn Pétursson og hornamaðurinn Oddur Gretarsson.
Liðið leikur tvo æfingaleiki gegn Þjóðverjum í Laugardalshöll 7. og 8. janúar en eftir þá leiki munu þrír leikmenn detta út úr hópnum.
Hópurinn er þannig skipaður:
Markverðir:
Björg Páll Gústavsson, Kadetten
Hreiðar Leví Guðmundsson, Emsdetten
Sveinbjörn Pétursson, Akureyri
Aðrir leikmenn:
Aron Pálmarsson, Kiel
Ingimundur Ingimundarson, AaB
Arnór Atlason, AG Köbenhavn
Þórir Ólafsson, Lübbecke
Guðjón Valur Sigursson, Rhein-Neckar Löwen
Snorri Steinn Guðjónsson, AG Köbenhvn
Ólafur Stefánsson, Rhein-Neckar Löwen
Sigurbergur Sveinsson, Rheinland
Sturla Ásgeirsson, Val
Alexander Petersson, Fücshe Berlin
Sverre Jakobsson, Groswallstadt
Róbert Gunnarsson, Rhein-Neckar Löwen
Oddur Gretarsson, Akureyri
Vignir Svavarsson, Hannover-Burgdorf
Kári Kristján Kristjánsson, Wetzlar