Styrkveitingar úr Menningar- sjóði Sparisjóðs Svarfdæla

Styrkveitingar úr Menningarsjóði Sparisjóðs Svarfdæla fyrir árið 2010 fóru fram í gær, fimmtudaginn 9. desember, í menningarhúsinu Bergi á Dalvík.  Alls fengu átta aðilar úthlutun, samtals að upphæð tvær milljónir króna.  

Vallakirkja, kr. 500.000- vegna viðgerðar á undirstöðu kirkjuklukku.

Karlakór Dalvíkur
, kr. 500.000- vegna þróttmikillar starfsemi kórsins.

UMF Reynir
, kr. 200.000- til að koma félagsblaðinu Helga magra á tölvutækt form.

Kristjana Arngrímsdóttir
, söngkona kr. 200.000- vegna útgáfu á diski.

Náttúrusetur Húsabakka
, kr. 200.000- vegna útgáfu bæklings um friðland Svarfæla.

Kristín Símonardóttir og Bjarni Gunnarsson
, kr. 200.000- vegna söguseturs Bakkabræðra.

Kór Stærri Árskógskirkju
, kr. 100.000- vegna starfsemi kórsins.

Leikfélag Dalvíkur
, kr. 100.000- vegna dagskrár í samvinnu við Bókasafn Dalvíkur sem haldin verður í Menningarhúsinu Bergi.

Nýjast