Í fjárhagsáætlun ársins 2011 var gert ráð fyrir eilítilli fækkun kennslustunda sem kemur fram við þessa úthlutun. Naustaskóli stækkar enn og bætir við sig nemendum, þannig að þeim fækkar þá í öðrum skólum sem því nemur. Vegna þessa fjölgar stöðugildum kennara í Naustaskóla, Giljaskóla og Brekkuskóla, í Hlíðarskóla, Hríseyjarskóla og Grímseyjarskóla verður engin breyting, en þeim fækkar lítillega í Oddeyrarskóla, Glerárskóla, Lundarskóla og Síðuskóla, segir í bókun skólanefndar.