Stjúpurnar alltaf vinsælastar

Katrín Ásgrímsdóttir/mynd MÞÞ
Katrín Ásgrímsdóttir/mynd MÞÞ

„Það hefur verið stöðugur straumur hjá okkur undanfarna daga, júní hefur verið óvenju góður, mikið að gera og góð sala,“ segir Katrín Ásgrímsdóttir sem ásamt eiginmanni sínum Gísla Guðmundssyni á og rekur Gróðrarstöðina Sólskóga. Stöðin er rekin á tveimur stöðum á landinu, í Kjarnaskógi á Akureyri og á Kaldá á Völlum, Fljótsdalshéraði, skammt innan við Egilsstaði.

Margir varkárir

Úrvalið er mjög fjölbreytt, en hún segir að fjöldi tegunda sem Sólskógar bjóði séu í kringum eitt hundrað, sumarblóm, fjölær blóm, tré og runnar.

„Margir eru varkárir og kaupa alltaf það sama, en aðrir eru tilbúnir að prófa eitthvað nýtt. Það eru tískusveiflur í sumarblómum eins og öðru, við verðum vör við það,“ segir hún. Stjúpur eru alltaf vinsælar og verma ævinlega fyrsta sætið þegar kemur að sölu sumarblóma. Þær eru t.d. mjög mikið teknar til að prýða leiði í kirkjugörðum og þeir eru margir sem aldrei bregða út af þeim vana að setja nokkrar stjúpur á leiði ástvina sinna. „Þær sóma sér líka vel þar, eru harðgerar og fallegar,“ segir Katrín Ásgrímsdóttir.

 

Nánar er rætt við Katrínu  í prentútgáfu Vikudags

Nýjast