Stjórn Eyþings samþykkti bókun vegna brotthvarfs fréttamanns RÚV

Óskar Þór Halldórsson fréttamaður lét af störfum á starfsstöð RÚV á Akureyri um síðustu mánaðamót en hann hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra knattspyrnudeildar KA. Stjórn Eyþings, sambands sveitarfélaga í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum, samþykkti bókun vegna brotthvarfs Óskars Þórs frá RÚV.  

Þar segir m.a: "Að mati stjórnarinnar er hér um að ræða einn besta fréttamann sem svæðisstöðin hefur haft. Óskar Þór hefur með einstaklega vönduðum fréttaflutningi stuðlað að jákvæðri og málefnalegri umfjöllun um málefni Norðurlands. Brotthvarf hans úr starfi fréttamanns veldur því vonbrigðum og er það von stjórnar Eyþings að RÚV eigi eftir að njóta starfskrafta Óskars á ný og skorar á stjórnendur RÚV og Óskar að vinna að því."

Nýjast