Stjórn Akureyrarstofu samþykkti drög að nýjum samningi við LA

Meirihluti stjórnar Akureyrarstofu samþykkti fyrir sitt leyti á fundi sínum í gær, drög að nýjum samningi við Leikfélag Akureyrar, með þeim athugasemdum sem fram komu á fundinum. Helena Þ. Karlsdóttir S-lista lagði fram eftirfarandi bókun: “Mikilvægt er að á Akureyri sé starfandi atvinnuleikhús. Leikfélag Akureyrar hefur verið lyftistöng menningarlífs í bænum og laðað til sín mikinn fjölda áhorfenda, bæði bæjarbúa sem og gesti. Því tel ég að taka verði hinn mikla fjárhagsvanda LA föstum tökum, rétta eigi af fjárhag félagsins á sem stystum tíma og fara í árangursríkar aðgerðir. Það er mín skoðun að semja hefði átt við LA á grundvelli tillagna sem gerðu ráð fyrir að leikfélagið yrði skuldlaust eftir eitt ár. Samkvæmt fyrirliggjandi samningi er gert ráð fyrir lengri björgunartíma, meiri óvissu og meiri hætta er á að markmiðin náist ekki. Ég tel að bærinn sé í raun að taka á sig skuldir LA án þess að tryggt hafi verið að rekið verði metnaðarfullt atvinnuleikhús í bænum til framtíðar og greiði því ekki atkvæði með samningnum.”

 

Nýjast