Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar-Iðju, segir á vef RÚV að það sé ljóst að baráttuhugur sé í starfsmönnum Becromal. Alls greiddu 52 starfsmenn atkvæði, 51 sagði já við verkfalli en einn sagði nei. Í samningnum er sérsamningur um verkföll og þar gert ráð fyrir 45 daga fyrirvara.