Konur úr Soroptimistafélaginu á Akureyri heimsóttu Aflið, samtök gegn kynferðis- og heimilisofbeldi í dag og færðu Aflskonum styrk að upphæð 100.000 krónur. Soroptimistafélagið verður 30 ára í febrúar næstkomandi. Soroptimistar eru alþjóðleg samtök en markmið þeirra er að hvetja til aðgerða og skapa tækifæri til að breyta lífi kvenna og stúlkna með fjölþjóðlegu samstarfi og alþjóðlegu félaganeti.
Konurnar hvetja til jafnræðis og jafnréttis, vilja skapa öruggt og heilsusamlegt umhverfi, auka aðgengi að menntun, og efla leiðtogahæfni og hagnýta þekkingu til sjálfbærrar framtíðar. Það snertir okkur Aflskonur mikið að finna fyrir þessum velvilja úr öllum áttum úr þjóðfélaginu, og erum þakklátar og stoltar yfir því að fá þennan styrk, segir í fréttatilkynningu frá Aflinu.
Á myndinni eru stjórnarkonur frá Soroptimistafélaginu, f. h. Sigríður Ágústsdóttir, Bryndís Þórhallsdóttir og Guðrún Jóhannesdóttir og Aflskonurnar Sæunn Guðmundsdóttir, Anna María Hjálmarsdóttir og Hrefna Björg Waage Björnsdóttir.