Sól og blíða á sveitamarkaði í Eyjafjarðarsveit

Rjómablíða var í Eyjafjarðarsveit í gær. Mynd: Þorgeir Baldursson.
Rjómablíða var í Eyjafjarðarsveit í gær. Mynd: Þorgeir Baldursson.

Sumardagur á sveitamarkaði var haldinn á blómum prýddu torgi gömlu garðyrkjustöðvarinnar við Jólagarðinn í Eyjafjarðarsveit í gær. Þar var margt um mannin og ekki spillti veðrið fyrir, sól og rjómablíða. Þetta var fyrsti markaðurinn af sex sem að verða á sunnudögum í sumar, að sögn Berghildar Ólafsdóttur sem að er í forsvari fyrir hópnum. Þetta er sjöunda sumarið sem sveitamarkaður er haldinn í Eyjafjarðarsveit og hefur jafnan verið byrjað um miðjan júlí og haldið áfram fram í ágúst. Aðsóknin hefur aukist jafnt og þétt og kemur fólk með heimatilbúinn varning til að selja.

 

Nýjast