Félagsmálaráð Akureyrarbæjar samþykkti samhljóða á fundi sínum í vikunni að mæla með því að
Soffía Lárusdóttir verði ráðin í starf framkvæmdastjóra búsetudeildar. Inda Björk Gunnarsdóttir formaður
félagsmálaráðs og Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri kynntu niðurstöður úr viðtölum við umsækjendur
á fundinum. Alls bárust tólf umsóknir um stöðuna.