Slys varð á Bíladögum á Akureyri í kvöld þegar bíll lenti utan í tveimur áhorfendum í svokallaðri Drift keppni með þeim afleiðingum að einn var fluttur á slysadeild. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Akureyri varð atvikið með þeim hætti að bíllinn fór útaf brautinni, hafnaði á girðingu og einum áhorfenda og girðingin lenti svo á öðrum áhorfenda. Báðir hlutu þeir meiðsli en sá sem varð fyrir girðingunni slasaðist meira og var fluttur á sjúkrahús. Ekki er vitað um alvarleika meiðslana. Keppnin var stöðvuð og er málið í rannsókn hjá lögreglunni á Akureyri.