Þorbjörn Guðrúnarson, slökkviliðsstjóri á Akureyri, hefur látið af störfum, samkvæmt tilkynningu frá bænum í dag. Staðan verður auglýst á næstunni laus til umsóknar.
Málefni Slökkviliðs Akureyrar hafa undanfarin misseri verið í brennidepli vegna eineltis á vinnustaðnum.
Í tilkynningu frá bænum er Þorbirni þakkað fyrir vel unnin störf og honum óskað velfarnaðar í framtíðinni.