Slökkviliðsstjórar við Eyjafjörð undirrita samstarfssamning

Slökkviliðsstjórar fjögurra slökkviliða í Eyjafirði, Akureyrar, Grenivíkur, Dalvíkur og Fjallabyggðar, skrifuðu í dag undir samstarfssamning fyrir hönd sveitarfélaga sinna, sem byggir á gagnkvæmri aðstöð í útköllum. Þar segir m.a. að ef upp kemur það ástand vegna útkalls eða annarra lögbundina starfa slökkviliða getur sá slökkviliðsstjóri sem útkallið fær kallað til hvert það slökkvilið sem hann telur þörf á til að fást við verkefni sem í gangi er hverju sinni.  

Útkallið tekur aðeins til þeirra tækja og mannafla sem slökkviliðsstjóri metur að mögulegt sé að leggja til. Skal leitast við takmarka útköll eins og kostur er og aðeins kalla út eftir að mat á aðstæðum á vástað hefur átt sér stað hverju sinni. Kostnaður vegna slíkra útkalla eru viðkomandi útkallsslökkviliði að kostnaðarlausu nema lengd útkalls fari yfir 4 tíma hverju sinni. Skulu þá slökkviliðsstjórar meta kostnaðinn og leggja fyrir viðkomandi stjórn brunamála í sveitarfélaginu til samþykktar, eins og segir í samningnum.

Nýjast