Á fjórða fundi með ríkissáttasemjara sem fram fór sl. föstudag náðist samkomulag á milli Becromal og Einingar-Iðju fyrir hönd starfsmanna í vaktavinnu. Í hádeginu þann dag var svo skrifað undir nýjan kjarasamning við Becromal í húsnæði ríkissáttasemjara í Reykjavík. Samningurinn nær til starfsmanna í vaktavinnu sem eru í Einingu-Iðju og skrifaði formaður félagsins ásamt starfsmönnum Becromal sem valdir voru í samninganefnd undir hann. Samningurinn verður kynntur starfsmönnum fyrirtækisins á tveimur fundum í dag, mánudaginn 21. maí kl. 14 og 17 og verða greidd atkvæði um hann í póstkosningu. Kosningin mun standa yfir til mánudagsins 4. júní.