Skriðuföll í Eyjafjarðarsveit

Þessi mynd var tekinn um miðnætt fyrir ofan Hólavatn. Mynd/Edda Kamilla.
Þessi mynd var tekinn um miðnætt fyrir ofan Hólavatn. Mynd/Edda Kamilla.

Aurskriður féllu í Eyjafjarðarsveit um kl. 22:00 í gærkvöld. Ein skriða féll í landi Hóla og önnur fyrir ofan Hólavatn. Samkvæmt upplýsingum Vikudags renna vatnsflaumar niður fjallshlíðarnar í Eyjafjarðarsveit og talsvert er um minni skriður.Veðurstofan varar við hættu á skriðuföllum og krapaflóðum vegna leysinga og vatnavaxta, einkum á Norður- og Austurlandi.

throstur@vikudagur.is

Nýjast