Sjúkrahúsið á Akureyri fær styrk til vinnustaðanáms

Sjúkrahúsið á Akureyri. Mynd: Hörður Geirsson.
Sjúkrahúsið á Akureyri. Mynd: Hörður Geirsson.

Sjúkrahúsið á Akureyrir hefur fengið styrk að upphæð 1.003.000 kr. til vinnustaðanáms vorið 2012 og mun sjúkrahúsið leggja sitt af mörkum í vinnustaðanámi nemenda. Mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsti um áramótin eftir umsóknum um styrki til fyrirtækja eða stofnana sem taka nemendur í vinnustaðanám. Markmið styrkjanna er að hvetja fyrirtæki eða stofnanir til þess að taka við nemendum sem stunda vinnustaðanám sem hluta af námi á framhaldsskólastigi og gera þeim kleift að ljúka tilskildu vinnustaðanámi samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla. Þetta kemur fram á vef Sjúkrahússins á Akureyri.

Nýjast