Sinfóníuhljómsveit Norðurlands með tónleika í Hofi

Ein vinsælasta og þekktasta sinfónía Beethovens verður flutt á tónleikunum.
Ein vinsælasta og þekktasta sinfónía Beethovens verður flutt á tónleikunum.

Sinfóníuhljómsveit Norðurlands býður upp á glæsilega efnisskrá á tónleikum í Hofi sunnudaginn12. febrúar kl. 16.00, þar sem ein vinsælasta og þekktasta sinfónía Beethovens, Sinfónía nr. 7, verður flutt. Sinfónían er rómuð  fyrir kraft og fegurð, er full glaðværðar og danslegum takti. Hún hefur verið vinsæl í ýmsum kvikmyndum en nýlegt dæmi þess er í verðlaunamyndinni The king´s speech. Á efnisskránni er einnig frumflutningur á nýju íslensku tónverki eftir Jón Ásgeirsson tónskáld. Um er að ræða píanókonsert þar sem einleikarinn Peter Máté, einn fremsti píanóleikari Íslendinga stígur á stokk en Jón samdi verkið sérstaklega fyrir hann. Jón hefur lengi fylgst með ferli Peters og segir m.a. um hann: “Peter er frábær píanóleikari, hann er  einstaklega næmur á blæbrigði og hefur mjög góða og eftirtektarverða tækni.”

Fingalshellir eftir Mendelssohn er einnig á efnisskránni. Verkið ætti að höfða vel til Íslendinga en í framvindu þess getur að heyra enduróm af hljóðum sjófugla, vindgnauði, sjávarnið og veðurofsa í margbreytilegum myndum. Tónlistarfólk og aðrir listamenn tala gjarnan um hversu mikil nálægð skapast við áheyrendur í Hamraborginni í Hofi og hversu mikilvæg hún er til að efla stemningu og hughrif. Hljóðfæraleikarar SN hlakka til tónleikanna 12. febrúar sem þykja kjörið tækifæri fyrir alla til að upplifa töfra klassískrar tónlistar. Það er ekki á hverjum degi sem tækifæri gefst til að hlýða á glæsilega sinfóníu og frumflutning á íslensku verki í takt við ört hækkandi sól, segir í fréttatilkynningu.

 

Nýjast