Selfoss og Akureyri skildu jöfn í kvöld er liðin mættust á Selfossi í 17. umferð N1-deild ar karla í handbolta. Lokatölur urðu 31:31 en Akureyri hafði fjögurra marka forystu í hálfleik, 15:11. Akureyri fer þar með upp í 28 stig á toppi deildarinnar en Selfoss hefur sjö stig í neðsta sæti og gæti stigið í kvöld reynst heimamönnum dýrmætt í botnbaráttunni. Þetta var aðeins annað jafntefli norðanmanna í vetur í sautján leikjum.
Bjarni Fritzson átti góðan leik fyrir Akureyringa í kvöld og skoraði 12 mörk. Fyrir Selfyssinga var Ragnar Jóhannsson markahæstur með 7 mörk.