Segja aðgerðir Seðlabankans gagnvart Samherja byggðar á röngum forsendum

Samherji hefur kært úrskurð héraðsdóms til Hæstaréttar.
Samherji hefur kært úrskurð héraðsdóms til Hæstaréttar.

Samherji hefur nú kært úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur, frá því í síðustu viku, til Hæstaréttar Íslands. Málið snýst um húsleit og haldlagningu gagna sem Seðlabanki Íslands framkvæmdi hjá Samherja í lok mars sl. Krafa Samherja í málinu lýtur að því að fá þær aðgerðir dæmdar ólögmætar og að Seðlabankanum verði gert að skila aftur haldlögðum gögnum. Héraðsdómur úrskurðaði í málinu 15. maí og hafnaði kröfu Samherja. Þetta kemur fram í bréfi til starfsmanna fyrirtækisins. Þar segir ennfremur. Aðgerðir Seðlabankans gagnvart fyrirtækinu eru byggðar á röngum forsendum. Seðlabankinn hefur enn ekki upplýst hvert raunverulegt tilefni þeirra var. Í úrskurði héraðsdóms þar sem húsleit og haldlagning gagna var heimiluð, kom m.a. fram fullyrðing Seðlabankans um að verð á karfa í viðskiptum Samherja til tengdra aðila í Þýskalandi væri verulega lægra en í viðskiptum annarra aðila.

Nýjast