08. desember, 2010 - 19:39
Á síðasta fundi íþróttaráðs Akureyrarbæjar var tekið fyrir erindi frá Atvinnuþróunarfélagi Eyjafjarðar
þar sem óskað var eftir því að Akureyrarbær verði með í sameiginlegu árskorti fyrir skíðasvæðin við
Eyjafjörð ásamt Dalvík, Siglufirði og Ólafsfirði.
Íþróttaráð samþykkti samvinnu við önnur skíðasvæði á Eyjafjarðarsvæðinu og var framkvæmdastjóra
íþróttadeildar og forstöðumanni Hlíðarfjalls falið að ljúka málinu.