Sala á rekstri Sparisjóðs Svarfdæla til Landsbankans samþykkt

Á stofnfjárhafafundi Sparisjóðs Svarfdæla sem haldinn var í gær, var samþykkt að rekstur Sparisjóðs Svarfdæla yrði seldur Landsbankanum hf.  Fulltrúar rúmlega 99% hlutafjár samþykktu tilboð Landsbankans í rekstur og eignir sparisjóðsins. Það var samþykkt af stjórn sjóðsins skömmu fyrir síðastliðin áramót með fyrirvara um endanlegt samþykki á stofnfjárhafafundi. Samkvæmt tilboðinu yfirtekur Landsbankinn skuldbindingar vegna innlána og víkjandi lána, sem samtals nema um 3.200 milljónum króna og greiðir að auki 165 milljónir.

Ennfremur yfirtekur Landsbankinn allar rekstrarlegar skuldbindingar sparisjóðsins. Endanleg sala er enn háð samþykki Fjármálaeftirlitsins, Samkeppniseftirlitsins og Eftirlitsstofnunar EFTA en að fengnu samþykki þessara aðila, mun Landsbankinn yfirtaka rekstur Sparisjóðs Svarfdæla, segir í fréttatilkynningu frá Landsbankanum.

Nýjast