SA Víkingar með stórsigur gegn SA Jötnum

SA Víkingar rótburstuðu SA Jötna, 12:2, er liðin mættust í Skautahöllinni á Akureyri í kvöld á Íslandsmóti karla í íshokkí. SA Víkingar náðu því að hefna fyrir tapið í síðustu rimmu liðanna. Með sigrinum komust SA Víkingar í 21 stig í öðru sæti deildarinnar en SA Jötnar hafa áfram sex stig í neðsta sæti.

SR trónir sem fyrr á toppnum en eftir 5:4 sigur gegn Birninum í Skautahöllinni í Laugardal í kvöld hefur liðið 25 stig á toppnum en Bjarnarmenn hafa 11 stig í þriðja sætinu.

Nánar verður fjallað um Íslandsmótið í Vikudegi næstkomandi fimmtudag.

Nýjast