Einn leikur fer fram á Íslandsmóti karla í íshokkí í kvöld en þá mætast Víkingar og Jötnar í
innbyrðisviðureign Skautafélags Akureyrar. Víkingar léku gegn Birninum um helgina og töpuðu 3:4 en Jötnar leika sinn fyrsta leik í kvöld
á tímabilinu. Leikurinn verður í Skautahöllinni og hefst kl. 19:30.
Farþegum með Grímseyjarferjunni Sæfara fjölgaði milli ára samkvæmt nýjum tölum fyrir tímabilið 1. maí til 1. september. Sumarið 2025 flutti ferjan 6.028 farþega en sumarið 2026 voru farþegarnir 6.029. Það fjölgaði um einn farþega á tímabilinu.
Lögreglan á Norðurlandi eystra fer fram á fjármögnun fyrir sjö ný stöðugildi, þar af fimm til almennrar eflingar löggæslu og tvö vegna verkefna sem tengjast ofbeldi gegn börnum.
Tögl og tíðir: Að greiða hár barns getur verið meira en verkefni sem þarf að ljúka áður en haldið er út í daginn. Stundin getur líka gefið færi á spjalli, samveru og tengslamyndun. Á námskeiðinu Tögl og tíðir hjá Þekkingarneti Þingeyinga fá feður tækifæri til að æfa hárgreiðslu og fræðast um blæðingar. Markmiðið er að efla bæði færni þeirra og öryggi í föðurhlutverkinu.
Fyrir okkur sem búum fjarri höfuðborginni skiptir máli að við getum greiðlega sótt þangað þjónustu án þess að slíkar ferðir valdi óþarfa fjárhagsáhyggjum. Það er grundvallaratriði að búseta ráði ekki möguleikum fólks til að nýta þá þjónustu sem byggð hefur verið upp fyrir alla landsmenn í höfuðborginni. Þar spilar innanlandsflugið lykilhlutverk. Boðaðar breytingar innviðaráðherra í tengslum við Loftbrúnna valda því miklum vonbrigðum.
„Ferðaþjónusta hefur á undanförnum árum orðið afar mikilvæg stoð í atvinnulífi á Akureyri,“ segir Jóhannes Þór Skúlason framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar.
Akureyrarbær hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi.
Viðurkenningin er staðfesting á þeirri vegferð sem sveitarfélagið hefur verið á með því að skapa vinnustað þar sem öll hafa jöfn tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif. Fjölbreytt stjórnendateymi tekur betri ákvarðanir, stuðlar að sterkari menningu og betri árangri fyrir sveitarfélagið og samfélagið allt.
Skipulagsráð Akureyrarbæjar hefur hafnað erindi íbúa við Dvergaholt sem fóru fram á að gatan yrði opnuð niður í Óseyri. Fram kemur í undirskriftarlista frá íbúum að húsnæði á vegum bæjarins sem eru við götuna vegi þar þungt.
Bangsaspítalar hafa um árabil verið viðurkennd aðferð til að fræða börn um heilbrigðisþjónustu á leikrænan hátt. Þeir hjálpa börnum að kynnast starfi heilbrigðisstarfsfólks, draga úr ótta við heimsóknir á heilsugæslu og sjúkrahús og stuðla að jákvæðu viðhorfi til heilsu og umönnunar frá unga aldri.
Eimur stýrir í fyrsta sinn evrópsku samstarfsverkefni eftir að gengið var frá styrksamningi við Evrópusambandið um verkefnið DEPLOY-PED. Styrkurinn nemur tæpum 700 milljónum króna og verkefnið stendur yfir í fjögur ár frá janúar 2027.