Ryskingar í miðbæ Akureyrar

Eins og sjá má á myndinni var tekist á um keðjuna sem lokar göngugötunni í miðbæ Akureyrar.
Eins og sjá má á myndinni var tekist á um keðjuna sem lokar göngugötunni í miðbæ Akureyrar.

Til ryskinga kom í miðbæ Akureyrar skömmu eftir hádegi í dag þegar starfsmaður í Pennanum Eymundsson ætlaði að loka göngugötunni við Hafnarstræti á Akureyri fyrir bílaumferð, í umboði Akureyrarstofu, samkvæmt heimildum Vikudags. Gatan hafði verið lokuð í allan morgun en kaupmaður í verslun við sömu götu brá á það ráð að opna götuna fyrir bílaumferð með því að losa keðju sem lokaði veginum.

Þegar starfsmaður Eymundsson ætlaði að loka götunni að nýju reyndi umræddur kaupmaður koma í veg fyrir það með þeim afleiðingum að til ryskinga kom á milli þeirra. Að sögn sjónarvotta gripu vegfarendur inn í og málið leystist farsællega. Gatan er nú lokuð á ný.

Nýjast