Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur lokið úthlutun styrkja til vinnustaðanáms vorið 2012. Veitt voru vilyrði fyrir styrkjum til 116 fyrirtækja og stofnana, sem taka nemendur í vinnustaðanám á grundvelli aðalnámskrár framhaldsskóla, samtals að fjárhæð 92,6 milljónir króna. Hér er um að ræða fyrirtæki í löggiltum iðngreinum og ýmsar stofnanir sem bjóða upp á vinnustaðanám í heilbrigðis-, félags- og umönnunargreinum. Styrkirnir miðast við viknafjölda í námi og voru að hámarki veittir styrkir til 24 vikna og nam styrkur á viku 17.000 kr. Styrkirnir eru veittir vegna 252 nemenda, sem eru í vinnustaðanámi fyrri hluta árs 2012. Stefnt er að því að auglýsa að nýju eftir umsóknum um styrki í júní næstkomandi og sem miðast við vinnustaðanám á síðari hluta ársins.