Rúmar 63 milljónir króna í fjárhagsaðstoð á árinu

Á fundi félagsmálaráðs Akureyrarbæjar í vikunni lagði Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar fram yfirlit yfir veitta fjárhagsaðstoð eftir fyrstu sjö mánuði ársins. Útgjöldin voru kr. 63.407.983 sem er 31% hækkun miðað við á sama tíma árið 2010. Félagsmálaráð lýsir áhyggjum sínum af þróun mála en ljóst er að fjárveiting ársins mun ekki nægja til að mæta þörf fyrir aðstoð. 

Nýjast