Felur aðkoma ríkisins í sér að framlög til málaflokksins aukast um allt að 250 m.kr. á ári og að sveitarfélögin tryggja
að nemendur geti stundað nám sitt án tillits til búsetu. Samkomulagið felur í sér að ríkissjóður veitir árlega framlag,
alls 480 m.kr., vegna kennslukostnaðar í tónlistarskólum. Á móti skuldbinda sveitarfélög sig til að taka yfir ný verkefni frá
ríki sem nemur 230 m.kr. Aukning á fjárframlögum til málaflokksins nemur því 250 m.kr. Viðræðunefnd á vegum ríkis og
sveitarfélaga mun vinna að samkomulagi um tilfærslu verkefnanna og er stefnt að því að nefndin ljúki störfum fyrir 1. júlí
næstkomandi.
Framlag ríkisins mun greiðast til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. Munu sveitarfélögin tryggja að framlagið fjármagni kennslu þeirra
nemenda sem eru innritaðir í viðurkennda tónlistarskóla og uppfylla nánari skilyrði sem sett verða í lögum um tónlistarskóla.
Á grundvelli samkomulagsins tryggja sveitarfélögin einnig að nemendur sem uppfylla inntökuskilyrði tónlistarskóla og reglur um námsframvindu geti
stundað tónlistarnám á framhaldsstigi í hljóðfæraleik og á mið- og framhaldsstigi í söng án tillits til búsetu.
Mennta- og menningarmálaráðherra mun á komandi haustþingi leggja fram frumvarp til laga um tónlistarskóla þar sem ýmis atriði í
samkomulaginu verða útfærð nánar. Samkomulagið felur einnig í sér að í reglugerð sem innanríkisráðherra setur verður
kveðið á um stuðning jöfnunarsjóðs við tónlistarnám nemenda á grunn- og miðstigi í hljóðfæraleik og á
grunnstigi í söng sem þurfa vegna framhaldsskólanáms eða af öðrum gildum ástæðum að innritast í tónlistarskóla
utan síns sveitarfélags.
Samkomulagið gildir fyrir skólaárin 2011-2012 og 2012-2013. Kveðið er á um að ríki og Samband íslenskra sveitarfélaga skuli hefja
viðræður um framlengingu og endurskoðun samkomulagsins við lok fyrra skólaársins. Samkomulagið var undirritað í tónlistarhúsinu
Hörpu í hádeginu í dag. Fyrir hönd ríkisins var samkomulagið undirritað af Katrínu Jakobsdóttur, mennta- og
menningarmálaráðherra, Steingrími J. Sigfússyni, fjármálaráðherra og Ögmundi Jónassyni,
innanríkisráðherra. Fyrir hönd Sambands íslenskra sveitarfélaga undirrituðu samkomulagið Halldór Halldórsson, formaður
stjórnar sambandsins og Guðríður Arnardóttir varaformaður.