„Við eigum góða möguleika á heimavelli en við gerum okkur grein fyrir því að við erum að fara spila á móti einu besta liði landsins. Við þurfum því að vera vel á tánum ef við ætlum okkur í úrslitaleikinn,“ sagði Páll.
Liðin mættust í deildarleik í byrjun júní á Þórsvelli og þar höfðu norðanmenn betur, 2:1. „Þetta er besta liðið sem við höfum mætt í sumar og þó að við höfum unnið þá um daginn að þá er ljóst að við verðum að hafa mikið fyrir þessu,“ segir hann.