Öllum 4. og 5. bekkingum boðið á Bláa gullið í Hofi

Norðurorka, Rarik, Menningarhúsið Hof, Borgarleikhúsið, Leikfélag Akureyrar, Flugfélag Íslands og KEA hafa tekið höndum saman ásamt leikhópnum Opið út og boðið öllum 4. og 5. bekkingum á Akureyri og nágrenni að koma á trúðasýninguna Bláa gullið. Alls koma um 800 börn á sýningarnar sem verða fjórar talsins, dagana 25. til 28. janúar í Hofi.  

Aðeins ein sýning er eftir af verkinu í almennri sölu, miðvikudaginn 26. janúar kl. 17.00. Bláa gullið var frumsýnt í Borgarleikhúsinu 10. október sl. Sýningin hefur það að markmiði að áhorfendur sjái vatn í nýju ljósi; upplifi margbreytileika, mikilvægi og töfra bláa gullsins. Þrír túðar leiða áhorfendur um sögusvið vatnsins sem hefur verið á stöðugu ferðalagi um jörðina í árþúsundir; undir og á yfirborði hennar, í öllu lífverum og um himingeiminn. Trúðarnir varpa fram ýmsum spurningum um eðli og uppruna vatnsins á fræðandi en trúðslegan hátt! Ragnhildur Gísladóttir sér um hljóðmynd og Gjörningaklúbburinn (www.ilc.is) sér um leikmynd og búninga.

Opið út, sjálfstætt starfandi leikhús, með Charlotte Böving í broddi fylkingar setur sýninguna upp í samvinnu við Borgarleikhúsið.  

Nýjast