Einnig kemur fram í fundargerð Almannaheillanefndar, að tiltölulega lítill hópur viðskiptavina bankanna hér á Akureyri sé í miklum vanda en fjárhagur flestra hafi þrengst í kreppunni og ekki vitað hvernig veturinn fer. T.d. fari erlendu bílalánin að koma aftur í endurgreiðslu á næstunni og margir sem ekki munu ráða við afborganir þar. Séreignasparnaður minnki og það eigi eftir að harðna á dalnum almennt hjá fólki í vetur.
Birgir fór stuttlega yfir stöðu Landsbankans á Akureyri. Fullt af fólki er í einhverjum vandræðum en úrræðin eru mörg. Verið er að endurreikna erlendu húsnæðislánin en þau voru ekki mjög mörg eða 100-150. 30 einstaklingar/hjón hafa farið í gegn um sértæka skuldaaðlögun á vegum bankans.
Sigurður frá Arion banka sagði að erlendu lánin væru ekki almennt til vandræða. Um 60 manns hér í Eyjafirði væri í langvinnum vandræðum en búið væri að taka 20-25 í gegnum sértæka skuldaaðlögun á vegum bankans. 10 manns væru með tilsjón og fleiri einstaklingar í vinnslu. Ný lög um "skjól" eftir að einstaklingar hafa óskað aðstoðar hjá umboðsmanni skuldara fresta mörgum málum. Flest vandamálin sagði hann að væru langstæðari en kreppan þó svo oft hefðu þau versnað við hana. Verið er að endurreikna erlendu fasteignalánin. Arion banki hefur ekki keypt neina eign á uppboði á þessu ári en þremur eignum hefur verið afsalað til þeirra.
Gunnar Jóhannesson frá lögreglunni kom einnig á fund Almannaheillanefndar og hann sagði að ástandið á Akureyri hefði lítið breyst frá því fyrir hrun. Eitthvað væri þó um að húsum og bílum sé "rústað" þegar fólk sér fram á að missa það. Afskipti af börnum og unglingum væri svipað og áður og ekki virðist vandræðum í heimahúsum vera að fjölga. Félagslegu tengslin við skólana hefðu samt rofnað við að starfsmaður hætti í vor og ekki væru til peningar til að ráða annan.