Snjóþekja er með ströndinni austur á Reyðarfjörð en ófært á Hálsum og verið að moka. Mokstur er hafin á
öllum leiðum. Á Austurlandi er þungfært á Vopnafjarðarheiði og þæfingsfærð á Möðrudalsöræfum en mokstur
stendur yfir. Snjóþekja á flestum leiðum og mokstur hafin. Snjóþekja og snjókom er á Fjarðarheiði. Á Norðurlandi vestra er
hálka á öllum leiðum í Húnavatssýslum og norður úr. Hálka og éljagangur er á Þverárfjalli og Vatnsskarði.
Snjóþekja er á flestum öðrum leiðum en ófært á Siglufjarðarvegi og unnið er að mokstri.
Á Suðausturlandi er hálka austan við Höfn en autt þar fyrir vestan. Vegir á Suðurlandi eru greiðfærir þó eru hálkublettir
á nokkrum leiðum í uppsveitum. Á Vesturlandi er hálka á Holtavörðuheiði. Hálkublettir eru í Bröttubrekku og á nokkrum
öðrum leiðum. Á Vestfjörðum er þæfingsfærð í Ísafjarðardjúpi og um Þröskulda og verið að moka, á
öðrum leiðum er snjóþekja eða hálkublettir og skafrenningur og verið að moka. Ófært er á Klettshálsi en mokstur hafin.