Rekstur Norðlenska gekk vel árið 2011. Ársvelta félagsins var 4.548 milljónir króna og jókst um rúm 10% á milli ára. Hagnaður ársins var 291 milljón króna og eigið fé Norðlenska er nú 386 milljónir króna. Á aðalfundi félagsins í gær var samþykkt að greiða eigandanum, Búsæld ehf., félagi 540 bænda, arð að upphæð 66 milljónum króna. Margir þættir lögðu grunninn að góðu uppgjöri félagsins.
Hagnaður ársins er m.a. til kominn vegna sterkrar stöðu á innanlandsmarkaði, en vörur og vörumerki Norðlenska njóta mjög mikilla vinsælda hjá neytendum. Einnig vegna þess að verð á erlendum mörkuðum var hærra en áður og sala úr landi meiri en hafði verið. Lækkandi vaxtastig í landinu skipti líka töluverðu máli sem og aukin hagræðing í rekstri. Markvisst hefur verið unnið að því að gæta aðhalds, og segja má að vinna síðustu ára við hagræðingu hafi skilað sér að fullu árið 2011. Fyrirtækið er nú í góðri stöðu.
Að sögn Sigmundar Ófeigssonar, framkvæmdastjóra Norðlenska, var reksturinn reyndar fremur erfiður framan af ári, vegna ástands á innlandsmarkaði. Á sama tíma fékkst nokkuð gott verð fyrir kjöt erlendis, það lækkaði stöðugt er á árið leið en þá styrktist innlandsmarkaðurinn mjög og Norðlenska jók markaðshlutdeild sína. Markaðir fyrir gærur og aukaafurðir voru mjög góðir á árinu, fyrirtækið hefur lagt aukna áherslu á að fullnýta sláturgripi, aukaafurðir eru allar fluttar út og skiluðu þau viðskipti góðum hagnaði. Reksturinn var því góður þegar upp var staðið og þess vegna ákvað stjórn Norðlenska í dag að greiða Búsæld, eiganda fyrirtækisins, arð í fyrsta skipti. Áður hafði verið greidd uppbót fyrir innlagt kjöt ársins 2011 og alls nema því þessar aukagreiðslur til bænda um 100 milljónum króna.
Hagnaður Norðlenska árið 2011 var 291 milljón kr. á móti 171 milljóna kr. hagnaði árið áður. EBITDA ársins varð 388,3 milljónir kr. en var 214,5 milljónir kr. árið áður. Stjórn Norðlenska er skipuð eftirtöldum aðilum: Heiðrún Jónsdóttir, Garðabæ, stjórnarformaður, Ingvi Stefánsson, Teigi, varaformaður, Geir Árdal, Dæli, ritari, Aðalsteinn Jónsson, Klausturseli, meðstjórnandi, Sigríður Elín Sigfúsdóttir, Reykjavík, meðstjórnandi. Varamenn eru: Óskar Gunnarsson, Dæli Skíðadal, Gróa Jóhannsdóttir, Hlíðarenda og Jón Benediktsson, Auðnum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Norðlenska.