Norðlenska greiðir 33 milljónir í uppbót á allt innlegg

Norðlenska á Akureyri. Mynd: Hörður Geirsson.
Norðlenska á Akureyri. Mynd: Hörður Geirsson.

Stjórn Norðlenska hefur ákveðið að greiða bændum 2,20% uppbót á allt innlegg ársins 2011. Uppbótin verður greidd út í næstu viku, alls um 33 milljónir króna án virðisaukaskatts. Þetta á við um allar búgreinar þannig að allir bændur sem leggja inn hjá Norðlenska fá greitt. „Reksturinn hefur gengið ágætlega, og við viljum að allir innleggjendur fái að njóta góðs árangurs,“ segir Sigmundur E. Ófeigsson, framkvæmdastjóri Norðlenska á vef fyrirtækisins.  „Þennan góða árangur má þakka samhentu liði starfsmanna, stjórnar og stjórnenda Norðlenska og síðast en ekki síst okkar ágætu eigendum og innleggjendum, bændunum. Allt hjálpaðist að,“ segir Sigmundur.

Nýjast