Kennt verður einu sinni í viku í 15 vikna lotu í 4,5 klst. í senn. Á Brautargengi læra þátttakendur um stefnumótun, vöru- og þjónustuþróun, markaðsmál, fjármál, stjórnun auk annarra hagnýtra atriða við stofnun og rekstur fyrirtækja. Þá er sérstaklega farið í kynningu á persónueinkennum frumkvöðla og stjórnenda og hvað þeir þurfa að hafa til að bera til að ná árangri. Brautargengi hefst 3. febrúar nk. en lýkur um miðjan maí. Námskeiðið stendur samtals í 75 klst.
Brautargengisnámskeiðin hafa verið kennd síðan 1998 og hafa yfir átta hundruð konur tekið þátt í þeim. Margar þeirra hafa stofnað fyrirtæki í kjölfarið og telja námskeiðið hafa ráðið úrslitum um stofnun þeirra. Flestar telja sig mun hæfari stjórnendur eftir að hafa lokið Brautargengisnámi. Samkvæmt niðurstöðum könnunar sem framkvæmd var vorið 2010 á árangri Brautargengis eru 55% þeirra kvenna sem lokið hafa Brautargengisnámi með fyrirtæki í rekstri og það yfirleitt í verslun og þjónustu. Fyrirtækin eru allflest með 10 starfsmenn eða færri en þó nokkur eru með yfir 30 starfsmenn.
Enn eru nokkur pláss laus en umsóknarfrestur er til 28. janúar. Nánari upplýsingar og umsóknareyðublað má finna á www.nmi.is/impra. Jafnframt veitir Selma Dögg Sigurjónsdóttir verkefnastjóri Impru á Akureyri nánari upplýsingar í síma 522 9434 eða á netfanginu selma@nmi.is.