Misskilningur á milli félaganna

Robin Strömberg fagnar einu af þremur mörkum sínum fyrir Þór í sumar.
Robin Strömberg fagnar einu af þremur mörkum sínum fyrir Þór í sumar.

Knattspyrnulið Þórs í 1. deild karla leitar nú að framherja eftir að liðið missti hinn sænska Robin Strömberg frá félaginu á dögunum. Strömberg kom til Þórs að láni frá Mjallby í Svíþjóð en sænska félagið óskaði eftir því á dögunum að fá leikmanninn til baka.

„Þetta er samkomulag á milli félaganna en þetta var meira hans eigin ósk sem við verðum að sjálfsögðu að virða,” segir Páll Viðar Gíslason þjálfari Þórs. Hann segir ákveðinn misskilning eða samskiptaleysi hafa verið á milli félaganna þegar lánssamningurinn var gerður. „Frá okkur bæjardyrum kom hann hingað sem framherji en hafði aldrei spilað í stöðu fremsta manns. Hann spurði okkur hvaða fréttir við hefðum eiginlega fengið um sig áður en hann kom en hann var ekkert að blómstra þarna fremst. Það eru hins vegar engin leiðindi í þessu. Hann er kurteis drengur en þetta náði bara ekki lengra. Hann var ekki alveg að njóta sín eins og við vonuðumst til,” segir Páll.

Strömberg kom til Þórs á láni í maí og hefur skorað þrjú mörk í átta leikjum í fyrstu deildinni í sumar. Páll segir að unnið sé að því að fá nýjan framherja, en ekkert verður af því að Jóhann Þórhallsson frá Fylki komið norður, eins og til stóð. „Við erum að horfa í kringum okkur en það er hins vegar engin örvænting í gangi hjá okkur. Við skoðum þetta bara í rólegheitum og ætlum ekki að fá hvern sem er,” segir Páll.

Nýjast