Minningartónleikar haldnir um séra Pétur í Laufási

„Í bljúgri bæn" er yfirskrift minningartónleika um sr. Pétur Þórarinsson í Laufási, sem  verða haldnir í Menningarhúsinu Hofi laugardaginn 19. mars kl. 20:00. Þar koma fram norðlenskir listamenn; hljóðfæraleikarar, kórar, tríó, kvartett og einsöngvarar, en hljómsveitarstjóri verður Gunnar Þórðarson.  

Kórarnir sem syngja á tónleikinum eru Himnodia og  Kammerkórinn Ísold undir stjórn  Eyþórs Inga Jónssonar og sameinaðir sóknarkórar Péturs, sem Petra Björk Pálsdóttir stjórnar. Álftagerðisbræður syngja eins og þeim einum er lagið og sömuleiðis kvenna-alt tríóið Alt saman. Einsöngvarar verða Hjalti Jónsson, Óskar Pétursson, Örn Viðar Birgisson og Sveinn Dúa Hjörleifsson. Lára Sóley Jóhannsdóttir leikur einleik á fiðlu. Milli laga verður brugðið upp myndbrotum úr lífi Péturs, m.a. myndum frá eftirminnilegum tónleikum, sem haldnir voru í Glerárkirkju til styrktar Pétri fyrir hálfum öðrum áratug.

Norðlensku listamennina þarf tæpast að kynna fyrir Norðlendingum. Kórinn Himnodia er skipaður þrautþjálfuðum söngvurum og hefur sungið hérlendis og erlendis, auk þess að syngja inn á hljómplötu. Kammerkórinn Ísold er skipaður ungum konum á aldrinum 17-26 ára, en  þessir kórar eru undir stjórn Eyþórs Inga Jónssonar, organleikara við Akureyrarkirkju. Alt-söngkonurnar Sigrún Arngrímsdóttir, Elví Hreinsdóttir og Arna Valsdóttir  skipa trióið Alt saman sem fer á kostum í gömlum dægurlagaperlum. Hjalti Jónsson tenór og  Lára Sóley Jóhannsdóttir fiðlusnillingur eru einstakir tónlistarmenn og húmoristar, líkt og  Örn Viðar Birgisson og Óskar Pétursson og bræður hans frá Álftagerði sem hafa sungið fyrir  Norðlendinga allt frá vöggu til grafar undanfarna áratugi.

 Sveinn Dúa hefur undanfarin misseri verið við nám og söng í Vínarborg og er talinn af  tónlistarfólki einn efnilegasti tenórsöngvari landsins. Til marks um það hefur hann verið valinn til að syngja ásamt Kristni Sigmundssyni við opnunarhátíð í tónleikahöllinni Hörpu í Reykjavík í maí. Á dögum séra Péturs kom Sveinn gjarnan heim um hátíðar og söng við messur í Laufási, en þeir voru miklir vinir enda nátengdir. Sveinn er systursonur Ingibjargar, ekkju Péturs. Móðir hans var Sigþrúður "Dúa" Siglaugsdóttir, sem lést úr krabbameini í október 2006.

Í hljómsveitinni verða norðlenskir hljóðfæraleikarar, flestir kennarar við Tónlistarskólann á Akureyri, en Gunnar Þórðarson sér um útsetningar og hljómsveitarstjórn 

Það verður því „tekið á því" og jafnframt sungið  inn að innstu hjartarótum á minningartónleikum Péturs. Tónleikarnir eru haldnir í tilefni þess að Pétur hefði orðið sextugur á árinu, en hann lést 1. mars 2007 eftir langvinn veikindi. Auk tónleikanna verður gefin út bók í minningu Péturs sem kemur út á afmælisdegi hans í júli. Í bókinni verða minningar samferðamanna um Pétur auk valdra kafla úr predikunum hans hans,  tækifærisræðum og greinaskrifum. Bókinni mun fylgja DVD diskur með heimildamynd um Pétur eftir Gísla Sigurgeirsson, kvikmyndagerðarmann. Hagnaður af tónleikum og bókaútgáfunni rennur í minningarsjóð um sr. Pétur.  Hlutverk sjóðsins verður að hlaupa undir bagga með einstaklingum og fjölskyldum sem lenda í erfiðleikum vegna veikinda af svipuðum toga og séra Pétur stríddi við. Sjóðurinn verður nánar kynntur á tónleikunum.

Þeir sem vilja gerast áskrifendur að bókinni geta skrifað sig á lista sem liggja mun frammi á  tónleikunum, eða sent bókun til nordri@nordri.is Nöfn þeirra verða jafnframt sett á sérstakan minningalista, Tabula memorialis, sem birtur verður í bókinni. Miðasala á tónleikana er hafin í Hofi og á vefnum  http://www.menningarhus.is/, segir í fréttatilkynningu.

Nýjast