„Nú þarf að hafa hraðar hendur, finna staðsetningu og hefjast handa við hönnun,“ segir Katrín Árnadóttir sem vakti athygli á málefnum Brekkukots í viðtalstíma bæjarfulltrúa nýverið. Katrín er móðir Ídu Anton, 10 ára stelpu með Downs heilkenni sem nýtir sér þjónustu Brekkukots.
Brekkukot er við Þórunnarstræti 99, í gamla Húsmæðraskólanum. Þar er rekin skammtíma- og frístundaþjónusta fyrir fatlaða en húsakynni henta ekki vel fyrir þá starfsemi. Húsið er við Tjaldsvæðisreitinn svonefnda þar sem til stendur í nánustu framtíð að byggja talsverðan fjölda fjölbýlishúsa. Heppilegt þykir að hafa starfsemi skammtíma- og frístundaþjónustu í húsnæði sem sérstaklega er byggt undir slíka þjónustu.
Katrín óskaði í viðtalstíma með bæjarfulltrúum eftir upplýsingum um stöðu húsnæðismála fyrir skammtímavistun á Akureyri. Farið var yfir endurbætur á húsnæðinu á fundi nýverið, en ýmislegt hefur verið gert til að bæta úr. Það nægir þó ekki til að húsið henti fyrir starfsemina. Það sem einkum gerir húsnæðið óhentugt eru langir og breiðir gangar sem gera alla yfirsýn erfiða. „Það hefur eitt og annað færst til betri vegar en almennt er öllum ljóst að brýn nauðsyn er á að flytja starfsemina í nýrra og betra húsnæði.“
Ekki eftir neinu að bíða
Katrín ræddi einnig um mikilvægi fagmennsku hvað umrædda starfsemi varðar og að skoða þyrfti hvort að ásættanlegt væri að einn starfsmaður á næturvakt bæri ábyrgð á allt að sex börnum. Í þeim efnum þyrfti sérstaklega að huga að öryggi þeirra og að brunavarnir væru í lagi í húsinu.
Til stendur að byggja á reitnum þar sem tjaldsvæðið var áður og verður hafist handa áður en langt um líður. „Við erum að tala um okkar viðkvæmasta hóp, fötluð börn, einhverf eða með aðrar greiningar. Þau eru sérlega illa stemmd gagnvart hávaða sem óhjákvæmilega fylgir því raski sem öllum framkvæmdum fylgir. Þetta verðum við að hafa í huga og það er í raun ekki eftir neinu að bíða með að setja vinnu í gang varðandi nýtt húsnæði fyrir þessa starfsemi,“ segir Katrín.

Katrín Árnadóttir
Þörf fyrir þjónustuna mun síst minnka
Á liðnu ári nýttu 25 einstaklingar skammtímaþjónustu í Brekkukoti, 4 voru þar í lífsleikniþjálfun og 22 börn nýttu frístundaþjónustu. Fjölmennari hópur nýtir þjónustuna að sumarlagi. Þá geta verið allt að 25 börn í þjónustu í einu.
Í minnisblaði sem lagt var fram í velferðarráði síðastliðið sumar kom fram að byggja þyrfti nýtt hús undir þessa starfsemi og stærð þess yrði á bilinu 500 til 550 fermetrar á einni hæð og með aðgengi að garði. „Ég held að þörf fyrir þessa þjónustu muni síst minnka með árunum og því sé skynsamlegt að horfa til lengri framtíðar og hafa húsið jafnvel stærra,“ segir Katrín.
Til tals hefur komið að nýta lóð við Hæfingarmiðstöðina við Skógarlund til að reisa nýtt húsnæði fyrir skammtíma- og frístundaþjónustu bæjarins. Þá nefndi Katrín að félagið Klettás sem hefur byggingarétt á reitnum hefði áhuga fyrir að kaupa húsið. „Ef það gengur eftir skapast ágætis tækifæri fyrir Akureyrarbæ að afla sér tekna upp í kostnað við nýtt hús,“ segir hún.
Framtíðarsýn komist inn í fjárhagsáætlun
Fyrir kosningar síðastliðið vor ræddi Katrín við forsvarsmenn nærri allra þeirra flokka sem buðu fram og ræddi málefni Brekkukots. „Það tóku allir vel í málið og stóðu með okkur, notendum þjónustunnar. Í málefnasamningi meirihlutans sem var myndaður eftir kosningar kemur fram „að skapa eigi nýja framtíðarsýn fyrir Brekkukot,“ eins og það er orðað í samningnum. Mér þykir það bara mjög gott, en þessi framtíðarsýn þarf að komast inn í fjárhagsáætlun. Það er verið að vinna að fjárhagsáætlun fyrir næsta ár um þessar mundir og ég treysti því og trúi að flokkarnir standi við orð sín og setji þetta mikilvæga málefni ofarlega á listann. Það verður eitthvað að gerast áður en framkvæmdir hefjast á svæðinu. Við megum ekki vakna upp við það einn daginn að ekki hafi verið hugað að þessum viðkvæma hópi og hann skilinn eftir í ryki og hávaða sem fylgir framkvæmdunum,“ segir Katrín.