Mikill fjöldi fólks á Ráðhústorgi á Akureyri í dag

Mikill fjöldi fólks kom saman á Ráðhústorgi á Akureyri í dag en þá voru ljósin tendruð á jólatrénu frá Randers, vinabæ Akureyrar í Danmörku. Dagskráin var fjölbreytt í tali og tónum, auk þess sem jólasveinarnir komu í bæinn gagngert til þess að syngja og sprella með yngstu kynslóðinni. Það var Sara Björk Jóhannesdóttir, 9 ára Akureyrarmær, sem tendraði ljósin á jóltrénu.  

Auk þess að syngja jólasöngva gáfu jólasveinarnir börnunum epli og jólasmákökur. Einnig gaf Norræna félagið á Akureyri gestum og gangandi glögg og piparkökur, félagar úr Matur úr Eyjafirði voru á staðnum og gáfu ýmiskonar gómsætt smakk úr firðinum og auðvitað var hinn ofvaxni jólaköttur sem gerður var í fyrra af starfsmönnum Fjölsmiðjunnar undir handleiðslu Aðalheiðar Eysteinsdóttur listakonu, búinn að koma sér makindalega fyrir við Randers jólatréð.

Nýjast