Nú rekur hver viðburðurinn annan á Akureyrarvöku og er fólk hvatt til að drífa sig í miðbæinn og njóta dagsins. Í kvöld munu herlegheitin hefjast kl. 20.30 með áherslu á eyfirska hönnun sem staðsett verður víða en fyrsti viðburðurinn undir yfirskriftinni Litríkur og lifandi miðbær er tískusýning staðsett á bátnum Húna II. Fjöldi viðburða s.s. dans, söngur verða á miðbæjarsvæðinu til klukkan 22 en þá er fólk hvatt til að rölta á Ráðhústorg og verða vitni að frábærri sirkussýningu hjá Sirkus Íslands. Að lokinni sirkussýningunni verður hægt að tylla sér á heybagga og njóta huggulegra harmonikkutóna. Dagskrána í heild sinni er að finna á vefnum www.visitakureyri