Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá stjórn Becromal Iceland ehf. vegna atkvæðagreiðslu um verkfall starfsmanna fyrirtækisins. Þar segir ennfremur; Vegna eðlis starfseminnar er ljóst að frá fyrsta degi verkfalls yrði starfsemin stöðvuð með tilheyrandi tjóni fyrir eigendur, starfsfólk, þjónustuaðila og allt umhverfi verksmiðjunnar. Stjórn Becromal Iceland ehf. lýsir miklum vonbrigðum með að fyrirtækinu verði stefnt í þá óvissu sem verkfall getur skapað um starfsemi þess, uppbyggingu og framtíð. Forsvarsmönnum stéttarfélagsins er jafnframt vel ljóst að deilt er um hvort kjarasamningur aðila sé yfir höfuð fallinn úr gildi, sem er forsenda lögmætrar verkfallsboðunar. Eðlilegra hefði verið að leiða þann ágreining til lykta fyrir Félagsdómi áður en ákveðið var að boða til atkvæðagreiðslu um verkfall. Það er einlæg von fyrirtækisins að þessari hættu verði afstýrt og að sameiginlegir hagsmunir starfsmanna og fyrirtækisins verði þannig settir í forgang.