Mikið tjaldað í maí

Talsverður erill var á tjaldsvæðunum við Þórunnarstræti og að Hömrum á Akureyri í maí og mun fleiri gestir en á sama tíma í fyrra. „Þar munar sennilega mest um hitabylgjuna sem var í kringum Hvítasunnuna,“ segir Tryggvi Marinósson, umsjónarmaður tjaldsvæðanna. Hann segir júnímánuðinn hins vegar fara rólega af stað en býst við þokkalegri traffík í sumar, enda sé nóg búið að panta fyrirfram. „En svo ræðst þetta alltaf af veðrinu á endanum“, bætir hann við.

Búist er við fjölda gesta til Akureyrar um helgina þegar Bíladagar fara fram en gestir hátíðarinnar gista hins vegar á tjaldsvæðum á vegum Bílaklúbbs Akureyrar.

Nýjast