Mikið annríki í sjúkraflutningum

Mikið álag hefur veið í sjúkraflutningum á Akureyri í dag og eru sjúkrabifreiðar Skökkviliðs Akureyrar búnar að sinna 9 neyðarútköllum það sem af er degi. Einnig kom eitt eldútkall á meðan 2 sjúkrabílar voru að sinna neyðarútkalli á Hjalteyri.Þetta kemur fram á heimasíðu slökkviliðsins. Þar segir enn fremur að mikið annríki hafi verið í sjúkraflugi en sjö flug um land allt hafa komið upp í dag og "þar af var fengin aðstoð frá þyrlu Landhelgisgæslunnar til að fara fyrir okkur á Ísafjörð, þar sem sjúkraflugvélin var upptekin á Höfn. Það vildi svo vel til að þyrlan var stödd á Akureyri vegna flugdags sem var haldin hátíðlegur í dag og var það auðsótt að fá þá í flugið.  Er þá tala sjúkrafluga sem Slökkvilið Akureyrar og Mýflug eru búin að sinna í þessum mánuði komin upp í 39."

Nýjast