ÍBV og Þór/KA gerðu í dag markalaust jafntefli er liðin mættust á Hásteinsvelli í fyrsta leik tíundu umferðar Pepsi-deildar
kvenna í knattspyrnu. Það skilur því enn eitt stig liðin að en ÍBV hefur nú 20 stig í þriðja sæti en Þór/KA 19
stig í fjórða sæti. Stjarnan er á toppi deildarinnar með 24 stig en Valur hefur 22 stig í öðru sæti. Tíunda umferð deildarinnar
klárast á þriðjudaginn.